03.09.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Milner til Swindon. (Staðfest)
Ungstirnið James Milner hjá Leeds United hefur verið lánaður til Swindon Town í einn mánuð. Milner sem skaust upp á stjörnuhimininn með því að verða yngsti leikmaðurinn til að skora í Ensku úrvalsdeildinni. Hann var aðeins 16 ára þá en nú er hann orðinn 17. Hann mun eins og fyrr segir vera á láni í mánuð en má ekki leika með Swindon gegn Leeds í deildabikarnum síðar í þessum mánuði.
