03.09.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Jugovic til Admira. (Staðfest)

Vladimir Jugovic.


Vladimir Jugovic.

Miðjumaðurinn Vladimir Jugovic er farinn til VfB Admira Wacker Mödling á tveggja ára samning. Þessi 34 ára miðjumaður hefur meðal annars spilað með Sampdoria, Juventus, Lazio og Inter Milan á Ítalíu. Jugovic sem spilaði með landsliði Júgóslavíu vann Meistaradeildina með Juventus tímabilið 1995/1996 en hann skoraði þá mark í vítaspyrnukeppninni sem réði úrslitum.
