Fotbolti.net
03.12.04 - 13:20
Elvar Geir Magnússon

Tevez til Corinthians (Staðfest)

Tevez til Corinthians (Staðfest)
Canon
Carlos Tevez er kominn frá Argentínu til Brasilíu eftir að Corinthians keypti hann frá Boca Juniors á 9,5 milljónir punda. Hópur fjárfesta gerði þessi kaup möguleg. Öll stærstu lið Evrópu hafa sýnt þessum unga argentínska leikmanni áhuga
Tevez var ekki að líka lífið í argentínska boltanum, fannst pressan vera of mikil og þá voru blaðamennirnir vægðarlausir. Hann var markahæsti leikmaður Ólympíuleikana þar sem hann skoraði átta mörk fyrir Argentínu sem vann gullið á mótinu

Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir A-landslið Argentínu í Suður-Ameríku bikarnum gegn gestgjöfunum í Perú. Það er spurning hvort Tevez fái treyju númer 10 hjá Corinthians en hann spilaði með það númer hjá Boca, maður hefur það nú á tilfinningunni að það sé hluti af samningnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.