04.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Jóhannes Gíslason í Val (Staðfest)


Mynd: Merki


Mynd: Merki
Valsarar hafa fengið liðsstyrk því að kantmaðurinn Jóhannes Gíslason hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Jóhannes hefur lítið leikið undanfarin tvö sumur vegna slæmra meiðsla en hann á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum og 20 leiki í efstu deild segir á heimasíðu Vals en þar fær Jóhannes viðurnefnið "Crazy Joe".
Jóhannes er annar leikmaðurinn sem kemur úr ÍA í Val fyrir næsta tímabil en áður hafði Baldur Aðalsteinsson gengið til liðs við Val. Ólafur Þór Gunnarsson og Hálfdán Gíslason gengu einnig til liðs við Val frá ÍA fyrir síðastliðið tímabilið og þá kom Ellert Jón Björnsson til liðsins um mitt af Skaganum en fréttir herma að hann sé á leið aftur heim til ÍA.
