04.01.10 - 14:06
Magnús Már Einarsson
Goran Pandev til Inter (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Inter Milan hefur samið við makedónska framherjann Goran Pandev en hann losnaði undan samningi hjá Lazio á dögunum.
Í yfirlýsingu frá Ítalíumeisturunum kom fram að Pandev sé búinn að gera samning við Inter til ársins 2014.
Pandev, sem er 26 ára gamall Makedóníumaður, verður kynntur formlega sem leikmaður Inter eftir leik liðsins gegn Chievo á miðvikudag.
Pandev kemur einnig til Inter á góðum tíma því að Samuel Eto’o er farinn á Afríkumótið og verður ekki með liðinu í næstu leikjum.

Heimild: AP