04.01.10 - 16:00
Hafliði Breiðfjörð
Hrefna Huld Jóhannesdóttir í Þrótt (Staðfest)

Hrefna Huld ásamt Theodóri Sveinjónssyni þjálfara Þróttar eftir undirskriftina.

Mynd: Þróttur

Framherjinn Hrefna Huld Jóhannesdóttir er gengin í raðir 1. deildar lið Þróttar frá KR en félagið tilkynnti um þetta í dag.
Félagaskiptin vekja nokkra athygli enda hefur Hrefna Huld verið meðal bestu leikmanna efstu deildar undanfarin ár og mikill getumunur er á milli efstu og 1. deild kvenna.
Því er koma hennar til Þróttar gríðarlegur liðsstyrkur en liðið ætlar sér sæti í efstu deild á næsta ári.
Hrefna Huld lék með KR í sumar eins og undanfarin ár en hafði verið hjá Stjörnunni í síðasta vetur þar sem hún hætti óvænt í maí og gekk í raðir KR að nýju.
Hún hafði æft og spilað æfingaleiki með ÍBV og Aftureldingu nú í haust en valdi svo að semja við Þrótt út komandi tímabil.
Hún á að baki 10 landsleiki fyrir Ísland og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Hún gaf ekki kost á sér í liðið á síðasta ári. Hún lék 11 leiki með KR í deildinni og skoraði í þeim níu mörk en hætti hjá liðinu í lok júlí.