04.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Alexandersson til Gautaborg (Staðfest)




Miðjumaðurinn Niclas Alexandersson hefur yfirgefið Everton og gengið til liðs við Gautaborg en samningur hans við Everton átti að renna út næsta sumar. Alexandersson sem er 32 ára sænskur landsliðsmaður hefur aðeins leikið með varaliði Everton að undanförnu en auk þess var hann í láni hjá West Ham. Gautaborg fær Alexandersson frítt en þessi fyrrum leikmaður Sheffield Wednesday hefur áður leikið með Gautaborg og varð sænskur meistari með liðinu árið 1996.
