Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 15:30
Kári Snorrason
Danijel fer ekki til Serbíu og æfir einn í Króatíu - Á heimleið?
Danijel var mættur til Serbíu og hafði samþykkt að ganga í raðir Zeleznicar Pancevo.
Danijel var mættur til Serbíu og hafði samþykkt að ganga í raðir Zeleznicar Pancevo.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danijel Dejan Djuric verður ekki lánaður til Serbíu frá króatíska liðinu NK Istra eins og Fótbolti.net greindi frá í síðasta mánuði.

Danijel var mættur til Serbíu og hafði samþykkt að ganga í raðir Zeleznicar Pancevo á láni út tímabilið á lokadegi serbneska gluggans en seinagangur varðandi pappíra olli því að skiptin gengu ekki í gegn.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net æfir Danijel nú einn í Króatíu og er hann að öllum líkindum á förum frá félaginu.

Spurning er hvort Danijel snúi aftur heim til Íslands en það hefur einnig verið áhugi frá Svíþjóð á þessum 23 ára gamla sóknarsinnaða miðjumanni.
Athugasemdir
banner