Fotbolti.net
04.05.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Óskar Örn til Grindavíkur (Staðfest)

Mynd: umfn.is

Mynd: umfn.is

Canon
Grindvíkingar hafa fengið fínan liðsstyrk fyrir komandi átök í Landsbankadeildinni því að Óskar Örn Hauksson gekk til liðs við liðið í dag. Óskar Örn sem að er aðeins 19 ára lék fimmtán leiki með Njarðvík í fyrstu deildinni síðasta sumar og skoraði í þeim sjö mörk. Undir lok móts í fyrra fór hann til norska liðsins Sogndal og samdi til tveggja ára við félagið.
Hann gat hinsvegar nýtt sér ákvæði í samningnum og yfirgaf hann því félagið eftir aðeins tveggja mánaða dvöl en þá mátti hann endurskoða það hvort að hann vildi vera áfram í Noregi.

Óskar sem að leikur ýmist á kanti, miðjunni eða frammi var einnig á samning hjá Molde á sínum tíma og á hann landsleiki að baki fyrir bæði U-17 og U-19 ára landslið Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.