04.05.04 - 00:00
Dhorasoo til AC Milan (Staðfest)

Dhorasoo

Dhorasoo

AC Milan eru búnir að semja við franska landsliðsmanninn Vikash Dhorasoo. Dhorasoo sem leikur með Lyon hefur verið í sigtinu hjá Ítalíumeisturunum lengi en loksins var gengið frá kaupunum nú í kvöld. Hann kemur frítt til Milan því samningur hans við Lyon rennur út í sumar.
Þessi þrítugi leikmaður var orðinn pirraður á Lyon og vildi breyta til. Bæði Paris Saint Germain og Marseille höfðu áhuga á honum en það er varla hægt að segja nei við AC Milan er það?
Annar leikmaður sem mun að öllum líkindum ganga til lið við Carlo Ancelotti og félaga á San Siro er hollenska varnatröllið Jaap Stam leikmaður Lazio. Hann mun vera hinn fullkomni miðvörður við hlið Allessandro Nesta á næsta tímabili segir Ancelotti.