Fotbolti.net
04.06.04 - 11:54
Magnús Már Einarsson

Del Neri tekur við Porto (Staðfest)

Del Neri tekur við Porto (Staðfest)
Canon
Luigi Del Neri stjóri Chievo Verona hefur verið ráðinn stjóri Porto og mun hann stýra liðinu næstu þrjú tímabil. Del Neri sem að er 53 ára tekur við stjórastarfi Porto af Jose Mourinho sem að tók í vikunni við Chelsea. "Gigi" eins og hann er kallaður hefur náð ótrúlegum árangri með Chievo, hann tók við liðinu árið 2000, kom því upp í Serie A og hefur það komið á óvart síðan og endaði í níunda sæti á síðustu leiktíð.
Del Neri er hvergi banginn við að taka við Porto þó að liðið hafi unnið Meistaradeildina og portúgölsku deildina á tímabilinu og segist hann ekki finna fyrir neinni pressu.

Hann tekur aðstoðarmann sinn frá Chievo, Francesco Conti með til Porto og einnig sjúkraþjálfarann Ugo Maranza.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.