04.06.12 - 16:20
Daníel Freyr Jónsson
Eden Hazard orðinn leikmaður Chelsea (Staðfest)

Eden Hazard í leik með Lille.

Mynd: Getty Images

Eden Hazard í leik með Lille.

Mynd: Getty Images
Eden Hazard hefur gengið frá félagaskiptum sínum til Chelsea eftir að hafa staðist læknisskoðun fyrr í dag.
Chelsea staðfestir einnig að samkomulag sé í höfn við Lille um kaupverðið á þessum unga leikmanni, en það er talið nema um 32 milljónir punda.
Í síðustu viku endaði Hazard fjölmiðlasirkusinn í kringum félagaskipti sín þegar hann opinberaði að hann hefði valið Chelsea, en honum stóð einnig til boða að fara til Manchesterliðana tveggja.
Í dag gekkst hann síðan undir læknisskoðun hjá Chelsea og voru samningsmál hans kláruð, en hann hittir nýju liðsfélaga sína á undirbúningstímabilinu í júlí.
Hazard spilar sem framliggjandi miðjumaður og hefur verið eftirsóttur af stærstu liðum Evrópu frá ungum aldri.
Hann sló fyrst í gegn með Lille einungis 17 ára gamall og var þá valinn besti ungi leikmaðurinn í Frakklandi. Á síðasta tímabili skoraði hann 21 mark í 48 leikjum, auk þess sem hann átti 18 stoðsendingar.

Heimild: Heimasíða Chelsea