04.06.12 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Zeman nýr þjálfari Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska Serie-A félagið Roma staðfestir að Zdenek Zeman hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari liðsins.
Luis Enrique stýrði Roma á nýliðnu tímabili en honum tókst ekki að komast í neina evrópukeppni svo hann var látinn fara.

Zeman, sem er 65 ára gamall, er búinn að skrifa undir samning til 2014. Zeman hefur áður stýrt félaginu, en það gerði hann frá 1997 til 1999.
Zeman er frægur fyrir að vera gríðarlega sóknarsinnaður þjálfari, en hann hefur nánast alltaf einungis notað uppstillinguna 4-3-3.
Leikstíll liða sem hann þjálfar er því gríðarlega sóknarsinnaður, en gott dæmi um það er lið Pescara sem hann stýrði upp úr ítölsku B-deildinni á nýliðnu tímabili.
Pescara skoraði þá 90 mörk í 42 leikjum, en næstmarkahæsta lið deildarinnar var Reggina sem skoraði 63 mörk. Pescara fékk þá 55 mörk á sig á tímabilinu, sem eru svipað mörg mörk og fallbaráttulið fengu á sig.