Fotbolti.net
04.06.12 - 22:22
Ívan Guðjón Baldursson

Ronaldinho til Atletico Mineiro (Staðfest)

Ronaldinho til Atletico Mineiro (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíska félagið Atletico Mineiro er búið að staðfesta að Ronaldinho sé genginn til liðs við félagið.

Ronaldinho fór frá Flamengo á föstudaginn og er nú búinn að skrifa undir hjá Atletico Mineiro aðeins nokkrum dögum síðar.
Ronaldinho fékk að rifta samningnum við Flamengo því hann segir félagið skulda sér 16 milljónir evra í óborguð laun, en hann var orðaður við Palmeiras í Brasilíu og Guangzhou R&F í Kína.

,,Hann er ekki bara einhver leikmaður, hann er Ronaldinho,\" sagði Alexandre Kalil, forseti Atletico Mineiro.

,,Ég hef það orðspor að vera brjálaður en ég er ekki nógu brjálaður til að sleppa því að fá Ronaldinho til félagsins.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.