María Catharina Ólafsdóttir Gros hefur getið sér gott orð í sænska fótboltanum en hún hefur einnig spilað í Skotlandi og Hollandi eftir að hún fór frá uppeldisfélagi sínu, Þór/KA.
´Í Hollandi spilaði María með Hildi Antonsdóttur en þær hafa núna endurnýjað kynni sín í landsliðinu.
´Í Hollandi spilaði María með Hildi Antonsdóttur en þær hafa núna endurnýjað kynni sín í landsliðinu.
María segir að Hildur hafi verið eins og stóra systir sín þegar þær spiluðu saman í Fortuna Sittard í Hollandi.
„Hún var bara kletturinn minn," sagði María þegar hún fór sem ungur leikmaður til Hollands og spilaði með Hildi. „Það var mjög gott að hafa hana."
„Hún var bara eins og eldri systir mín. Við erum mjög góðar vinkonur og hún er yndisleg."





