04.08.04 - 07:06
Magnús Már Einarsson
Ungverskur framherji til Crystal Palace (Staðfest)




Crystal Palace hefur fengið ungverska framherjann Sandor Torghelle frá MTK Hungaria. Torghelle sem að er 22 ára vakti athygli þegar að hann skoraði bæði mörk Ungverja í 2-0 sigri þeirra á Þjóðverjum á þessu ári en kappinn hefur skorað þrjú mörk í sjö landsleikjum. Hann mun væntanlega vera í eldlínunni með Ungverjum þegar að liðið mætir Íslendingum í undankeppni HM þann 8.september næstkomandi í Ungverjalandi.
Torghelle er bætis í hóp Gabor Kiraly, Julian Speroni, Mark Hudson, Emmerson Boyce og Joonas Kolkka sem að allir hafa komið til nýliða Crystal Palace í sumar en kappinn getur spilað sinn fyrsta leik á laugardag þegar að Palace mætir Sampdoria í æfingaleik á heimavelli.
