Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 04. ágúst 2020 17:30
Magnús Már Einarsson
Kona fær leyfi til að spila í meistaraflokki karla í Hollandi
Mynd: Getty Images
Hollenska knattspyrnusambandið hefur breytt reglum þannig að kona fái leyfi til að spila með meistaraflokki karla þar í landi.

Hin nítján ára gamla Ellen Fokkema mun fá leyfi til að spila með VV Foarut í níundu efstu deild í Hollandi.

Ellen hefur leikið með strákum upp alla yngri flokka hjá Foarut. Reglurnar voru þannig að konur máttu ekki spila með meistaraflokki karla en þeim reglum hefur nú verið breytt.

„Það er stórkostlegt að ég geti haldið áfram að spila með þessu liði," sagði Fokkema.

„Ég hef spilað með þessum strákum síðan ég var fimm ára og ég var mjög leið fram að þessari breytingu yfir því að geta ekki spilað með liðinu á næsta ári."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner