Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 04. ágúst 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Óli Kristjáns stýrði fyrstu æfingu hjá Esbjerg
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Ólafur Kristjánsson stýrði í dag sinni fyrstu æfingu hjá danska félaginu Esbjerg.

Ólafur hætti sem þjálfari FH á dögunum til að taka við liði Esbjerg.

Undirbúningur er nú hafinn fyrir nýtt tímabil í Danmörku en Esbjerg mætir Skive í 1. umferðinni í dönsku B-deildinni þann 13. september.

Fram að því eru nokkrir æfingaleikir en Ólafur stýrir Esbjerg í fyrsta skipti gegn Aarhus Framd í æfingaleik á mánudag.

Hér að neðan má sjá Ólaf að störfum á æfingunni í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner