Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 04. ágúst 2020 21:06
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Bryan skoraði af 40 metra færi í framlengingu
Joe Bryan skoraði fyrir Fulham
Joe Bryan skoraði fyrir Fulham
Mynd: Fulham
Enski vinstri bakvörðurinn Joe Bryan er búinn að koma Fulham yfir gegn Brentford í umspili um sæti í úrvalsdeildinni. Markið kom úr aukaspyrnu af rúmlega 40 metra færi.

Fulham fékk aukaspyrnu vinstra megin á vellinum og var það í verkahring Bryan að taka spyrnuna.

Hann virtist í fyrstu ætla að koma boltanum inn í teig á samherja en ákvað þó að láta vaða á nærstöngina.

David Raya, markvörður Brentford, bjóst ekki við því og misreiknaði hann aukaspyrnuna. Boltinn fór inn en hægt er að sjá markið hér fyrir neðan. Rándýr mistök hjá Raya.

Sjáðu markið hjá Bryan
Athugasemdir
banner
banner
banner