Fotbolti.net
04.11.04 - 16:31
Ómar Vilhelmsson

Grétar Hjartars og Bjarnólfur í KR (Staðfest)

Grétar Hjartars og Bjarnólfur í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: UMFG.is

Nú rétt í þessu var það staðfest á blaðamannafundi í KR heimilinu í Frostaskjóli að þeir Grétar Ólafur Hjartarson fyrrum leikmaður Grindavíkur og Bjarnólfur Lárusson fyrrum leikmaður ÍBV muni leika með vesturbæjarliðinu á komandi leiktíð. Við munum koma með nánari fregnar frá þessum félagsskiptum síðar í dag, ásamt viðtölum við kappana.
Þeir Grétar og Bjarnólfur eiga tvímælalaust eftir að styrkja vesturbæjarliðið mikið með tilkomu sinni og má vænta stórra hluta af KR-ingum á næstu leiktíð. Grétar var næstmarkahæsti leikmaðurinn í efstu deild í sumar með 11 mörk en lék ekkert með Grindavík á síðustu leiktíð vegna meiðsla. Tímabilið þar á undan, 2002, var hann markakóngur með 13 mörk.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.