Fotbolti.net
05.01.10 - 14:02
Magnús Már Einarsson

Jan Köller í frönsku 3.deildina (Staðfest)

Jan Köller í frönsku 3.deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jan Köller, fyrrum framherji tékkneska landsliðsins, hefur gert eins og hálfs árs samning við Cannes sem leikur í frönsku þriðju deildinni.
Þessi 36 ára gamli leikmaður var samningslaus eftir að hafa yfirgefið Samara í Rússlandi.

Eftir að hafa rætt við Cannes í þónokkurn tíma ákvað Köller að ganga til liðs við félagið.

,,Hann vildi helst eiga rólegt líf með fjölskyldunni þrátt fyrir áhuga frá félögum í Þýskalandi og Kína,\" sagði Pavel Paska umboðsmaður leikmannsins.

Köller hefur leikið með Sparta Prag, Lokeren, Anderlecht, Borussia Dortmund og Nurnberg á ferlinum sem og Monaco í Frakklandi frá 2006-2008.

,,36 ára að aldri þá hef ég ekki lengur mikinn metnað, ég vil spila fótbolta til gamans,\" sagði Köller.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.