Fotbolti.net
05.02.26 - 11:55
Elvar Geir Magnússon

Jhon Duran klárar tímabilið í Rússlandi

Jhon Duran.

Jhon Duran.

Canon

Mynd: EPA

Kólumbíski sóknarmaðurinn Jhon Duran mun klára tímabilið á láni hjá Zenit í Pétursborg.

Duran er samningsbundinn Al-Nassr í Sádi-Arabíu eftir að hafa komið frá Aston Villa fyrir ári síðan.

Eftir að hafa skorað 12 mörk í 18 leikjum fyrir Al-Nassr var hann lánaður til Fenerbahce í Tyrklandi þar sem hann hefur skorað fimm mörk og átt tvær stoðsendingar í 21 leik.
Íþróttafréttamaðurinn Santi Aouna segir að þeim lánssamningi hafi nú verið rift og að þessi 22 ára leikmaður sé óvænt á leið til Rússlands.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Duran komið víða við á ferlinum og spilað í Kólumbíu, Bandaríkjunum, Englandi, Sádi-Arabíu, Tyrklandi og næst væntanlega í Rússlandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.