Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
   fim 05. mars 2026 13:55
Kári Snorrason
Breiðablik hefur áhuga á Danijel Djuric
Danijel er uppalinn í Breiðabliki.
Danijel er uppalinn í Breiðabliki.
Mynd: Víkingur
Breiðablik hefur kannað möguleikann á að sækja Danijel Dejan Djuric í sínar raðir. Þá hefur ÍA jafnframt áhuga á leikmanninum, samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Eins og Fótbolti.net fjallaði um í gærdag er hann á förum frá króatíska félaginu NK Istra eftir að lánssamningur hans við Zeleznicar Pancevo í Serbíu gekk ekki í gegn.

Danijel er uppalinn í Breiðabliki en þaðan var hann seldur út til danska félagsins FC Midtjylland árið 2019.

Hann sneri aftur heim til Íslands árið 2022 og gekk þá í raðir Víkings. Danijel gekk til liðs við NK Istra frá Víkingi fyrir rúmu ári síðan.

Athugasemdir
banner
banner