Í gær tók Liverpool þá ákvörðun að starfsmenn félagsins fengju greitt 80% launa félagsins úr ríkissjóði. Þetta féll ekki vel í kramið hjá mörgum á Englandi.
Tengd efni:
Liverpool notar úrræði stjórnvalda - „Líður ekki eins og fjölskyldumeðlimi"
Carragher: Lélegt hjá Liverpool
Piers Morgan um ákvörðun Liverpool: Skammarlegt - Samþykkti Klopp þetta?
Tengd efni:
Liverpool notar úrræði stjórnvalda - „Líður ekki eins og fjölskyldumeðlimi"
Carragher: Lélegt hjá Liverpool
Piers Morgan um ákvörðun Liverpool: Skammarlegt - Samþykkti Klopp þetta?
Dietmar Hamann, fyrrum leikmaður félagsins, er hissa á þessu útspili eigenda félagsins. Hann segir að félagið sé að fara gegn þeim gildum sem það standi fyrir með þessum gjörðum.
Liverpool er fimmta félagið í ensku úrvalsdeildinni sem nýtir sér þetta úrræði.
„Undrandi vegna fréttana um að Liverpool nýti sér þetta úrræðii að ríkissjóður greiði 80% launa starfsfólks félagsins," skrifaði Hamann á Twitter.
„Þetta úrræði var ekki sett upp með þetta í huga. Þetta er í mótsögn við það þá stefnu og gildi sem félagið sem ég fékk að kynnast er þekkt fyrir."
Stan Collymore tekur í svipaðan streng. Collymore segir rangt að gera þetta og segir að hann viti ekki um einn stuðningsmann félagsins sem fái ekki óbragð í munninn að heyra þessar fréttir. Ennfremur segir hann að þetta úrræði eigi að vera fyrir lítil fyrirtæki svo þau geti haldið sjó, allir eigendur úrvalsdeildarliða eigi mikinn pening og eigi ekki að taka úr sjóði þeirra sem virkilega þurfi á þessum pening að halda.
Athugasemdir