Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 11:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leikurinn gegn Japan utan landsleikjaglugga - Hvernig verður hópurinn?
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar og Davíð Snorri tilkynna hópinn 13. maí.
Arnar og Davíð Snorri tilkynna hópinn 13. maí.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland mætir Japan í æfingaleik í Tókýó þann 31. maí og 9. júní mætir liðið svo Argentínu í Bandaríkjunum.

Það vekur athygli að leikurinn í Japan er utan landsleikjaglugga en alþjóðlegur landsleikjagluggi hefst ekki fyrr en 1. júní og er út 10. júní.

Erlend félög gætu komið í veg fyrir að KSÍ geti fengið leikmenn til sín í leikinn gegn Japan, en unnið er í því að fá grænt ljós frá félögunum.

„Það verða engir leikmenn í leiknum við Japan úr íslenskum deildum," segir Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ, við Fótbolta.net þegar hann var spurður hvort mögulega yrði að færa umferð í Bestu deildinni út af leiknum gegn Japan. Það verður ekki gert.

Tveir leikmenn í Bestu deildinni voru í síðasta landsliðshóp, þeir Gylfi Þór Sigurðsson og Anton Ari Einarsson. Breiðablik á leik 29. maí gegn Fram og Víkingur á leik gegn Val 31. maí.

„Að öllum líkindum verða ekki heldur leikmenn frá Noregi, Svíþjóð og mögulega næstefstu deild í Danmörku í hópnum í viðureigninni við Japan. Hópurinn verður tilkynntur 13. maí, nú er unnið í því að fá leikmenn lausa og sjá hverjir geta verið til taks," segir Jörundur.

Í síðasta landsliðshópi voru fimm leikmenn í hópnum sem spila í deildunum sem Jörundur nefndi: Mikael Neville Anderson og Arnór Sigurðsson spila í Svíþjóð, Kristall Máni Ingason og Jón Dagur Þorsteinsson spila í Noregi og Guðlaugur Victor Pálsson spilar í næstefstu deild Danmerkur.

Það ætti þó alveg að ganga að manna í hópinn ef félög í öðrum deildum segja já. Við Íslendingar eigum nokkuð marga atvinnumenn sem spila sem dæmi í Hollandi.

Svona var landsliðshópurinn í síðasta verkefni
Slapp
banner
banner