Fotbolti.net
05.06.12 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Montella er farinn frá Catania (Staðfest)

Montella er farinn frá Catania (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leiðir Vincenzo Montella og Catania eru búnar að skiljast að þrátt fyrir að Montella ætti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

Montella tók við stjórnartaumunum Catania fyrir ári síðan þegar hann tók við af Diego Simeone. Montella náði góðum árangri með Catania og endaði með félagið í ellefta sæti deildarinnar.
,,Catania tilkynnir að félagið hefur samþykkt að rjúfa samning Vincenzo Montella við Catania,\" stendur í yfirlýsingu frá félaginu.

Montella hefur verið orðaður við margar stjórastöður og virtist hann vera á leið til AS Roma þangað til Zdenek Zeman var ráðinn á mánudaginn.

Nú virðist líklegasti áfangastaður Montella vera í búningsklefa Fiorentina, en Delio Rossi var rekinn þaðan undir lok tímabilsins fyrir að sparka í eigin leikmann (Adem Ljajic).
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.