Fotbolti.net
05.06.12 - 09:33
Daníel Freyr Jónsson

Shinji Kagawa til Manchester United (Staðfest)

Shinji Kagawa.

Shinji Kagawa.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Manchester United hefur náð samkomulagi við Borussia Dortmund um kaup á Shinji Kagawa.
Leikmaðurinn hefur einnig samþykkt samningstilboð United og mun hann verða fyrstu kaup félagsins í sumar.



Samningaviðræður hafa staðið yfir í nokkrar vikur, en nú á Kagawa einungis eftir að standast læknisskoðun og fá atvinnuleyfi á Englandi.



United býst við að þau atriði renni í gegn og að félagaskiptin verði fullkláruð fyrir næstu mánaðarmót.



Þessa stundina er Kagawa staddur með japanska landsliðinu sem er að keppa í undankeppni HM 2014. Hann átti stórleik í 3-0 sigri Japans á Óman um helgina, en hann á að baki 30 landsleiki.



Þessi 23 ára gamli miðjumaður, sem einnig spilar sem vængmaður, gekk í raðir Dortmund árið 2010 frá Osaka í heimalandi sínu. Hann hefur síðan þá verið lykilleikmaður í liðinu sem varð Þýskalandsmeistari síðustu tvö tímabil. Að auki skoraði hann í 5-2 sigri Dortmund á Bayern í úrslitum þýsku bikarkeppninnar fyrir skömmu.



Kagawa mun verða fyrsti japanski leikmaðurinn í sögu Manchester United.

Heimild: Heimasíða Man Utd

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.