PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mielec
Einkunnir Íslands - Ekki var það fallegt
Eimskip
Thelma Karen Pálmadóttir.
Thelma Karen Pálmadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Glódís var að venju sterk í vörninni.
Glódís var að venju sterk í vörninni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hildur Antonsdóttir.
Hildur Antonsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland er skrefi nær HM draumnum eftir 0-1 sigur gegn Úkraínu í Póllandi í kvöld. Þetta var ekki fallegt en við gerðum nóg til að vinna leikinn og tryggja okkur þriðja sætið í riðlinum.

Hér fyrir neðan má sjá einkunnagjöf Fótbolta.net úr leiknum.

Lestu um leikinn: Úkraína 0 -  1 Ísland

Cecilía Rán Rúnarsdóttir - 7
Bara öryggið uppmálað. Varð vel í fyrri hálfleiknum.

Guðrún Arnardóttir - 6
Traust varnarlega sem fyrr. Skilar litlu sóknarlega.

Glódís Perla Viggósdóttir - 8
Fyrirliðinn bjargaði oft þegar Úkraína var að hóta marki. Mjög góðar staðsetningar varnarlega.

Ingibjörg Sigurðardóttir - 7
Fínasta frammistaða í hjarta varnarinnar.

Sædís Rún Heiðarsdóttir - 6
Var sterkari varnarlega en oft áður. Hefði örugglega viljað skila meiru fram á við.

Hildur Antonsdóttir - 7
Henti sér í öll einvígi og vann mikið fyrir liðið. Algjör nagli.

Alexandra Jóhannsdóttir - 6
Skilaði góðu dagsverki. Var að dreifa boltanum ágætlega.

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - 5
Fann ekki alveg taktinn áður en hún var tekin af velli snemma í síðari hálfleik.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - 7
Bjó til tvö mjög góð færi fyrir Ísland í leiknum sem Thelma Karen hefði mátt gera betur við.

Thelma Karen Pálmadóttir - 8 - Maður leiksins
Var mjög lífleg og langhættulegasti leikmaður Íslands. Skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og hefði átt að skora fleiri í þessum leik.

Sandra María Jessen - 7
Átti stóran þátt í marki Íslands þar sem hún skallaði boltann í hlaupaleið Thelmu. Vann mikla vinnu fremst á vellinum, gríðarlega dugleg.

Varamenn:
Hlín Eiríksdóttir - 6
Katla Tryggvadóttir - 6
Linda Líf Boama - 6
Aðrar spiluðu ekki nóg til að fá einkunn.
Slapp
banner
banner