„Ég held að það hafi ekki verið skemmtilegt að horfa á þetta en við komum til að vinna og kláruðum þetta. Það er það sem skiptir máli," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði, eftir mikilvægan 1-0 sigur gegn Úkraínu í undankeppni HM í Mielec í Póllandi á þessu ágæta föstudagskvöldi.
Lestu um leikinn: Úkraína 0 - 1 Ísland
„Það var margt sem við hefðum alveg viljað gera betur. Við vorum í brasi með grasið og boltann. Það voru augnablik þar sem við hefðum viljað vera rólegri og spila betur. Við vorum að koma okkur sjálfum í vandræðum. Þetta var kaos leikur en við höndluðum þetta aðeins betur en þær og þess vegna unnum við."
Þetta var mikilvægur sigur þar sem við komum okkur í betri stöðu í umspilinu sem er framundan fyrir HM.
„Það var smá erfitt fyrir okkur að ná stjórn á leiknum. Svo var dómarinn að prófa þessar nýju reglur og alveg að fara yfir um. Þetta var pínu bras en ég er gríðarlega stolt að við kláruðum þetta. Við erum búnar að tryggja þetta þriðja sæti núna," sagði Glódís.
Var hún að taka þessu of bókstaflega?
Glódís nefnir þarna að dómarinn hafi verið að prófa nýjar reglur. FIFA er nefnilega að innleiða nýjar reglur sem munu meðal annars vera í gildi á HM í sumar. Reglurnar segja meðal annars til um að dómari eigi að telja niður við innkast og markspyrnur og leikmaður sem fær aðhlynningu verður að vera út af í 60 sekúndur. Þessar reglur voru í gildi í leiknum í kvöld og tók dómarinn mjög hart á því.
„Ég held að þetta verið bara tekið í burtu strax. Þetta eru hræðilegar reglur. Ég er ekki viss um að það verði mikil ánægja með þetta á HM. Það er spurning hvort hún hafi verið að taka þessu aðeins of bókstaflega," sagði Glódís.
„Við gátum ekki tekið löng innköst, gátum ekki gert neitt sem við erum vanar að gera. Stelpurnar töluðu um að þetta væri eins og að vera í jójó testi í 90 mínútur, engin pása. Þetta var pínu öðruvísi en ég vona að hún hafi verið aðeins að ýkja þetta."
Glódís reyndi að tala við dómarann eftir leik og fékk áhugaverð svör. „Ég talaði við hana eftir leik og sagði að þetta væru hræðilegar reglur. Hún sagðist vera sammála því. Hún sagði að það eina sem hún gat hugsað um í leiknum væri að telja niður. Sjáum hvernig þetta þróast. Ég vona að þetta séu ekki endilega reglurnar, heldur hvernig dómarinn var að beita þeim," sagði landsliðsfyrirliðinn.
Allt viðtalið er í spilaranum hér fyrir ofan.























