Heimild: Akureyri
Jafntefli 1-1 varð niðurstaðan á Akureyri þegar KA og Valur mættust í Bestu deildinni í gær.
Skapti Hallgrímsson var með myndavélina á nýja Greifavellinum og náði mörgum öflugum myndum sem fönguðu dramatíkina eins og sjá má á Akureyri.net.
Í lok leiksins vildu margir KA-menn í stúkunni fá vítaspyrnu og hér að neðan má sjá skemmtilega myndasyrpu af því atviki.

„Nökkvi Þeyr féll með tilþrifum í vítateig Vals á lokamínútu hefðbundins leiktíma og margir utan vallar heimtuðu vítaspyrnu en Erlendur Eiríksson, sá margreyndi og yfirvegaði dómari, skellti skollaeyrum við þeim kröfum. Birkir Már Sævarsson náði að spyrna boltanum í burtu en virtist ekki brjóta á Nökkva. Hólmar Örn Eyjólfsson, varnarmaðurinn öflugi hjá Val, var ekki sáttur við KA-manninn unga, taldi hann greinilega hafa reynt að plata dómarann og lét hann heyra það. Þeir Hólmar og Nökkvi skildu þó sáttir," skrifaði Skapti.
Athugasemdir