05.08.04 - 09:41
Hafliði Breiðfjörð
Vignal orðinn leikmaður Rangers (Staðfest)




Gregory Vignal bakvörður Liverpool mun leika með Rangers næsta árið en hann hefur gert samning við skoska félagið um að leika með þeim á láni út leiktíðina. Undirskrift Vignal náðist í tæka tíð svo hægt var að skrá hann í Meistaradeild Evrópu með Rangers og því verður hann löglegur í leiknum gegn CSKA Moskva í forkeppninni.
Vignal sem er 23 ára gamall Frakki hefur verið á reynslu hjá Rangers og spilaði með þeim æfingaleiki gegn Newcastle, Tottenham og Fulham. Hann hefur aðeins leikið 14 leiki með Liverpool síðan hann var keyptur frá Montpellier árið 2000 en hann hefur verið á láni hjá Rennes og Espanyol upp á síðkastið.
