Fotbolti.net
05.08.04 - 10:12
Hafliði Breiðfjörð

Cisse til Crystal Palace (Staðfest)

Cisse til Crystal Palace (Staðfest)
Canon
Aliou Cisse miðvallarleikmaður Birmingham gekk í dag í raðir Crystal Palace á eins árs lánssamningi. Senegalinn hefur ekki átt fast sæti í liði Birmingham og fer til Palace í von um að fá að spila meira. Willie McKay umboðsmaður hans sagði: ,,Aliou vill hjálpa Palace að halda sæti sínu á fyrsta ári sínu, eins og hann gerði á fyrstu leiktíðinni með Birmingham. Cisse kostaði Birmingham 1,5 milljónir punda er hann var keyptur frá Paris St Germain. Hann spilaði 17 leiki með félaginu á síðustu leiktíð, fékk sjö gul spjöld og eitt rautt. Hann er 28 ára gamall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.