Fotbolti.net
05.08.04 - 19:00
Elvar Geir Magnússon

Mattias Jonson til Norwich (Staðfest)

Mattias Jonson til Norwich (Staðfest)
Canon
Norwich er búið að styrkja lið sitt enn frekar fyrir baráttuna í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur keypt sænska vængmanninn Mattias Jonson frá Bröndby í Danmörku og hefur hann skrifað undir tveggja ára samning á Carrow Road.
"Ég er hæstánægður með að fá Jonson því hann er sókndjarfur leikmaður og reynslumikill." sagði Nigel Worthington stjóri Norwich um hinn þrítuga Jonson sem á 41 landsleik að baki fyrir Svíþjóð.

Margir ættu að kannast við Jonson frá því að hann jafnaði fyrir Svíþjóð gegn Danmörku á EM. Markið kom seint í leiknum og varð til þess að Ítalía datt úr leik.

Sjá einnig:
Umfjöllun um leik Svía og Dana á EM
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.