Fotbolti.net
05.09.26 - 16:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Badu vonsvikinn: Vorum á leið í umspilið áður en Evrópuævintýrið byrjaði

Auglýsing
Badu vonsvikinn: Vorum á leið í umspilið áður en Evrópuævintýrið byrjaði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Vestri lauk leik í Lengjudeildinni þetta tímabilið með 2-0 tapi gegn Þrótti.

Hinn tvítugi Benedikt Jóhann Þ. Snædal og hinn 17 ára gamli Albert Ingi Jóhannsson spiluðu í dag. Daniel Badu, þjálfari Vestra, var mjög ánægður með þá.
Lestu um leikinn: Vestri 0 - 2 Þróttur R.
„Benni er búinn að vera mjóg góður á æfingum en það er erfitt að fá tækifæri. Þegar Marvin meiddist kom hann inn og búinn að spila mjög vel í þremur leikjum. Sama með Albert, kannski hefði ég átt að leyfa honum að spila meira en ég hef séð að hann er að þróast," sagði Badu.

Það var klárt markmið hjá Vestra að fara í umspilið.

„Við vildum vera í topp fimm. Við vorum á leið í topp fimm áður en Evrópuævintýrið byrjaði. Það er stutt á milli, þessi Evrópukeppni tók mikið úr okkur," sagði Badu.

Badu er bjartsýnn á framhaldið.

„Við æfum í þessari viku svo fá ég og leikmenn tíma til að hvíla og hugsa um eitthvað annað en fótbolta. Ég er mjög hungraður og bjartsýnn fyrir framtíðina. Það er mikið sem ég og við getum gert betur og ég vil gera betur," sagði Badu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.