Stefán Þór leggur skóna á hilluna - „Kannski að maður kíkir í einn golf hring"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var ljúft, ljúft að klára þetta. Úr því sem komið var, var þetta afskaplega ljúft," sagði Stefán Þór Pálsson leikmaður ÍR eftir 3-2 sigur þeirra á Leikni.
ÍR hefði getað fallið í 2. deild hefðu þeir tapað í dag, og önnur úrslit farið gegn þeim. Þeir gerðu hins vegar sitt og komust undan því.
„Við náttúrulega byrjum af gífurlegum krafti og vikan er bara búin að vera rosalega jákvæð. Jákvæð orka inn í klefa og á æfingum sem skilaði sér klárlega inn í leikinn. Það sést, við erum komnir 3-0 yfir eftir 30 mínútur, eða ég man ekki hvað það var mikið. Tilfinningin bara mjög góð í leiknum," sagði Stefán.
Tímabilið fyrir ÍR er þá búið og Stefán er ánægður að mestu með hvernig það gekk.
„Það var vonbrigði að fara í þessa fallbaráttu, það var óþarfi af okkar hálfu. En þetta var bara gífurlega lærdómsríkt tímabil, það er rosalega margt sem er hægt að taka út úr þessu. Bæði jákvætt og sem má betur gera, við þurfum bara að setjast niður og greina tímabilið, og það sem á að skila sér inn í næsta tímabil líka," sagði Stefán.
Stefán virðist tilbúinn að greina liðið tímabil, en ekki að taka þátt á því næsta.
„Ég er alveg til í að greina þetta tímabil, en þetta var líklegast minn seinasti leikur í keppnisfótbolta," sagði Stefán.
Hann leggur því skóna á hilluna og horfir hlýjum augum til baka á sinn feril.
„Ég er stoltur, og ánægður. Ég er búinn að vera í fótbolta frá því ég var barn, þannig að sjálfsögðu eru tilfinningar í þessu. Mest jákvæðar og ég er mjög stoltur af mínum ferli," sagði Stefán.
Stefán segist ekki alveg ákveðinn á því hvað tekur við næst.
„Það kemur í ljós. Fjölskyldulíf og allskonar svoleiðis, bara eitthvað jákvætt og spennandi," sagði Stefán en hann segist einnig spenntur fyrir því að geta farið í frí næsta sumar. „Það verður mjög gott, kannski að maður kíkir í einn golf hring."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
