05.09.26 - 17:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Venni: Ástæðan fyrir því að maður er að garfast í þessu
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Erfið æfing að ná í fyrsta markið en þegar það kom þá fannst mér þetta engin spurning," sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, eftir sigur á Vestra í lokaumferð Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: Vestri 0 - 2 Þróttur R.
„Þetta tekur tíma. Þeir pökkuðu svolítið í vörn en svo tókst okkur að brjóta ísinn í seinni hálfleik, það hefði alveg getað gerst í fyrri hálfleik. 90 mínútur er langur tími en leikurinn var heldur hressilegri eftir 1-0."
Þróttur hafnaði í 2. sæti og mætir Njarðvík í undanúrslitum umspilsins.
„Það er önnur keppni framundan, úrslitaleikir, mjög skemmtilegt. Mikið undir og þetta er ástæðan fyrir því að maður er að garfast í þessu þó að gamla kerfið hefði vissulega hentað okkur aðeins betur, þá hefðum við komist upp. Ég kvarta ekki, mér finnst þetta skemmtilegar reglur," sagði Venni.