Fotbolti.net
05.10.20 - 13:59
Elvar Geir Magnússon

Félagaskipti Hólmberts til Brescia sögð í hættu

Félagaskipti Hólmberts til Brescia sögð í hættu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Norski blaðamaðurinn Jonas Giæver segir á Twitter að félagaskpti sóknarmannsins Hólmberts Arons Friðjónssonar til Brescia séu í hættu.

Brescia vilji endursemja við Álasund um kaupverðið þar sem læknisskoðun hafi leitt í ljós að meiðsli Hólmberts séu verri en talið var í fyrsta.
Hólmbert hefur verið hjá Álasundi í Noregi frá 2018 en hann er með ellefu mörk fyrir liðið á tímabilinu.

Hólmbert, sem er 27 ára, á fjóra A-landsleiki að baki en hann skoraði gegn Belgíu í síðasta landsleikjaglugga.

Brescia féll úr ít­ölsku A-deild­inni á síðustu leiktíð en Birkir Bjarnason er meðal leikmanna félagsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.