05.12.04 - 13:51
Magnús Már Einarsson
Dennis Siim til FH (Staðfest)

Dennis Siim.

Dennis Siim.

Danski miðjumaðurinn Dennis Siim skrifaði í gær undir eins árs samning við Íslandsmeistara FH en þetta kemur fram á stuðningsmannasíðu liðsins fhingar.net. Þessi 28 ára leikmaður var til reynslu hjá FH í síðasta mánuði og heillaði forráðamenn liðsins.
Siim hefur leikið með Glostrup, AGF, OB og SønderjyskE í Danmörku en hann þekkir þá Tommy Nielsen og Allan Borgvardt frá því að þeir léku allir með AGF á sínum tíma. SønderjyskE vildi halda í Siim en hann ákvað að fara frekar til FH.
„Ég fór í síðasta mánuði til Íslands að líta á aðstæður hjá FH og þær komu mér skemmtilega á óvart. Það er vel haldið á málum hjá félaginu og landslagið er frábært. FH bauð mér eins árs samning og ég hlakka mjög mikið til dvalarinnar á Íslandi þar sem er gríðarlegur áhugi á fótbolta. Félagið mun spila í undankeppni meistaradeildarinnar og það verður spennandi. Ég hafði fengið tilboð frá nokkrum félögum í þýsku fyrstu deildinni en vona að ég geti nælt mér í samning við svolítið stærra félag í góðri deild ef ég næ góðu tímabili á Íslandi .“ sagði Siim.