05.12.04 - 14:07
Magnús Már Einarsson
Grétar Sigurðsson áfram hjá Víking (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Grétar Sigfinnur Sigurðsson varnarmaðurinn sterki hjá Víkingi R. verður áfram hjá liðinu á næsta tímabili en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í dag. Grétar sem að er 22 ára skoraði sex mörk í átján leikjum með Víkingi í efstu deild í sumar en hann spilaði nokkra leiki sem sóknarmaður.
Keflavík, KR og Valur vildu öll fá Grétar en þau náðu ekki samkomulagi við Víking um kaupverð. Grétar sem að hefur einnig leikið með KR og Sindra á Hornafirði er samningsbundinn Víkingi þar til 2006.
Hann fór út til hollenska liðsins RKC Waalwijk og var til reynslu en honum var ekki boðinn samningur. Fyrir mánuði staðfesti Grétar við Fótbolti.net að hann væri á förum frá Víkingi en honum hefur snúist hugur og verður hann áfram í Fossvoginum.
Sjá einnig:
Hin Hliðin á Grétari (Febrúar 2004)