Fotbolti.net
06.01.10 - 16:28
Magnús Már Einarsson

Freddy Adu til Aris Salonika (Staðfest)

Freddy Adu til Aris Salonika (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Gríska félagið Aris Salonika hefur fengið hinn bandaríska Freddy Adu á láni frá Benfica í Portúgal en samningurinn gildir í eitt og hálft ár.
Adu, sem er tvítugur, var líka með tilboð frá Hull City en hann ákvað að fara frekar til Grikklands.

Adu lék sinn fyrsta landsleik einungis sextán ára gamall og þótti þá einn efnilegasti leikmaður í heimi.

Hann hefur ekki náð að fylgja því eftir og hefur einungis spilað nokkra leiki með Benfica síðan að hann kom til félagsins árið 2007.

Adu fór til Monaco á láni á síðustu leiktíð og fyrir áramót var hann á láni hjá portúgalska félaginu Belenenses.

Sjá einnig:
Hvað varð um Freddy Adu? (Nóvember 2009)

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.