06.01.10 - 15:16
Magnús Már Einarsson
Darren Ferguson tekur við Preston (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Darren Ferguson hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri hjá Preston en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Ferguson hætti hjá Peterborough í nóvember þegar að liðið var á botni Championship deildarinnar.
Þessi 37 ára Skoti mun núna taka við Preston af Alan Irvine sem var rekinn í síðustu viku en liðið er í sextánda sæti í Championship deildinni.
Ferguson er sonur Sir Alex stjóra Manchester United en hann var sjálfur á mála hjá United sem leikmaður á sínum tíma.
Ferguson lék einnig með Wolves, Sparta Rotterdam og Wrexham áður en hann lagði skóna á hilluna árið 2007.

Heimild: BBC