Enska úrvalsdeildarfélagið Everton er á eftir franska framherjanum Odsonne Edouard en sá leikur með Celtic í Skotlandi.
Edouard, sem er 22 ára gamall, hefur spilað með Celtic síðustu tvö ár en hann er uppalinn hjá Paris Saint-Germain.
Hann hefur skorað 26 mörk og lagt upp 18 á tímabilinu og þá hefur hann gert 11 mörk í 6 leikjum með U21 árs landsliði Frakklands frá því hann byrjaði að leika með liðinu í september á síðasta ári.
Enska félagið Everton hefur sent njósnara til að fylgjast með Edouard í undanförnum leikjum en Celtic er að undirbúa samningaviðræður við leikmanninn í von um að halda honum.
Talið er að Everton gæti þurft að borga rúmlega 30 milljónir punda til að festa kaup á honum en PSG fær hluta af kaupverðinu í sinn vasa.
Athugasemdir