06.05.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Fyrrum leikmaður B. Munchen til Þróttar (Staðfest)

Mynd:Vikingur.net


Mynd:Vikingur.net

Markvörðurinn Stefán Logi Magnússon hefur gengið til liðs við Þrótt R. Stefán Logi sem að er 23 ára hefur verið á mála hjá liðum eins og Fram, Farum, Bradford, Öster og þýska stórliðinu Bayern Munchen. Hann kemur til Þróttar frá Víkingi R. en hann gekk til liðs við þá fyrir síðasta tímabil. Hann hætti hinsvegar með Víkingum á miðju tímabilii eftir að hafa þurft að vera á varamannabekknum fram að því.
Samkvæmt okkar heimildum á Fjalar Þorgeirsson hinn sterki markvörður Þróttar við einhver meiðsli að stríða og því mun Stefán Logi vera til taks fyrir hann og væntanlega veita honum samkeppni um markvarðarstöðuna.
