Íslandsmótið er farið af stað og eru sjö leikir á dagskrá í kvöld. Allir eru þeir í Lengjudeildinni og hefjast klukkan 19:15.
Í Lengjudeild karla á Fram leik við Víking Ólafsvík á meðan Þróttur R. tekur á móti Fjölni.
Þá fara fimm leikir fram í Lengjudeild kvenna þar sem Haukar og FH mætast meðal annars í Hafnarfjarðarslag.
Leikir kvöldsins:
Lengjudeild karla
19:15 Þróttur R.-Fjölnir (Eimskipsvöllurinn)
19:15 Fram-Víkingur Ó. (Framvöllur)
Lengjudeild kvenna
19:15 Víkingur R.-HK (Víkingsvöllur)
19:15 Afturelding-Grindavík (Fagverksvöllurinn Varmá)
19:15 Haukar-FH (Ásvellir)
19:15 Augnablik-KR (Kópavogsvöllur)
19:15 Grótta-ÍA (Vivaldivöllurinn)
Athugasemdir