Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 11:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Þungavigtin 
Aron Sig: Himinn og haf á milli þeirra
Gregg Ryder og Óskar Hrafn.
Gregg Ryder og Óskar Hrafn.
Mynd: Samsett
Magnus Börheim var ráðinn til KR í vetur.
Magnus Börheim var ráðinn til KR í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hilmar Árni Halldórsson kom sömuleiðis til KR í vetur.
Hilmar Árni Halldórsson kom sömuleiðis til KR í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron er kominn með fimm mörk í deild og tvö í bikar. Auk þess er hann kominn með þrjár stoðsendingar.
Aron er kominn með fimm mörk í deild og tvö í bikar. Auk þess er hann kominn með þrjár stoðsendingar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR hefur farið frábærlega af stað á Íslandsmótinu og er með fullt hús stiga eftir fimm umferðir í Bestu deildinni. Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, var til viðtals hjá Kristjáni Óla Sigurðssyni í Þungavigtinni í dag.

Síðasta ár einkenndist talsvert af meiðslum. Aron var spurður hvað hefði breyst á milli undirbúningstímabila.

Mun minna um meiðsli
„Við fengum inn norskan sjúkraþjálfara (Magnus Börheim) sem sér um æfingaálagið. Munurinn á hópnum er að það hrundu allir í meiðsli. Munurinn á sjálfum mér er að ég held að ég hafi spilað hverja einustu mínútu í fyrra á undirbúningstímabilinu áður en ég meiddist. Við vorum í ógeðslega góðu standi á undirbúningstímabilinu í fyrra þangað til að lærið fór hjá mönnum. Ég tognaði einum og hálfum mánuði fyrir mót, Luke (Rae) tognaði held ég sex sinnum og menn duttu allir út einhvern tímann á tímabilinu. Núna er aðeins meiri strúktúr á þessu og við komum ekki eins fljúgandi inn í tímabilið, en samt í mjög góðu standi; ekki búið að vera neitt geðveikis-álag á neinum. Mér finnst við ennþá vera að spila okkur í okkar besta stand. Óskar er alltaf jafn harður, en loturnar eru styttri og mínútunum deilt betur í leikjum. Mér finnst munurinn mikill," segir Aron.

Missti fljótt klefann
Hann kom í KR frá Horsens fyrir tímabilið 2024. Þá var Gregg Ryder þjálfari KR. Hvernig ber hann Óskar Hrafn og Gregg Ryder saman?

„Það er himinn og haf á milli þeirra. Óskar Hrafn er langbesti þjálfari sem ég hef verið með á ferlinum. Gregg Ryder er meiri peppari og vill spila pressubolta, en fótboltahliðin var ekki alveg hans... hann ætlaði að fara á þetta á einhverri geðveiki; vera í betra standi og hlaupa yfir lið sem gekk bara alls ekki. Hann tapaði mönnum í klefanum fljótt og það var búið snemma."

Aron spilaði sem atvinnumaður í Noregi, Belgíu og Danmörku en stendur fast á því að Óskar sé besti þjálfarinn á ferlinum.

„Í Belgíu var maður meira með 'managera' (stjórnendur) og svo þjálfara úti á velli. Óskar er á allt öðru stigi."

Hrósar Hilmari Árna í hástert
Aron hrósar svo innkomu Hilmars Árna Halldórssonar sem ráðinn var aðstoðarþjálfari liðsins í vetur.

„Hann er að koma fáránlega vel inn, ég hafði miklar væntingar til hans en hann er búinn að fara fram úr þeim öllum, hann er ógeðslega flottur. Hann er alltaf eftir æfingar að taka menn í skot, taka aukaæfingar með mönnum. Hann er geggjaður í því að undirbúa leiki, er frábær náungi og ég gæti ekki hrósað honum meira. Hann og Óskar eru að mynda geggjað teymi."

Stefnir hátt og aftur í landsliðið?
Aron segir í viðtalinu að hann stefni á markametið og að hann ætli sér að vera marka- og stoðsendingahæstur í deildinni í sumar.

Kristján Óli sagði þá við Aron að hann yrði í landsliðshópnum gegn Argentínu í byrjun næsta mánaðar. Kristján Óli kvaðst hafa heimildir fyrir því, en Aron hefur sjálfur ekkert heyrt um það. Hópurinn verður opinberaður 13. maí.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 5 5 0 0 22 - 9 +13 15
2.    Víkingur R. 5 4 1 0 13 - 4 +9 13
3.    Breiðablik 5 3 2 0 8 - 2 +6 11
4.    Fram 5 3 1 1 15 - 9 +6 10
5.    Valur 5 3 0 2 11 - 9 +2 9
6.    Stjarnan 5 2 0 3 11 - 13 -2 6
7.    Þór 5 2 0 3 5 - 11 -6 6
8.    ÍA 5 1 2 2 6 - 10 -4 5
9.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
10.    Keflavík 5 1 1 3 6 - 10 -4 4
11.    FH 5 0 1 4 8 - 15 -7 1
12.    ÍBV 5 0 1 4 6 - 16 -10 1
Slapp
banner
banner
banner