Úrslit voru að berast úr tveimur æfingaleikjum. Annars vegar átti ÍBV heimaleik gegn KA í meistaraflokki karla og hins vegar mættust KR og Stjarnan í meistaraflokki kvenna.
Í Vestmannaeyjum var hart barist og komust Eyjamenn yfir með marki frá Bjarna Ólafi Eiríkssyni í síðari hálfleik. Gunnar Örvar Stefánsson jafnaði svo fyrir KA.
Akureyringar leika í Pepsi Max-deildinni í sumar. Eyjamenn féllu í fyrra og leika því í Lengjudeildinni í ár.
ÍBV hefur verið að gera góða hluti á undirbúningstímabilinu og stefnir beint aftur upp í efstu deild.
Í kvennaleiknum voru það Katrín Ásbjörnsdóttir og nafna hennar Katrín Ómarsdóttir sem skoruðu í 2-1 sigri KR gegn Stjörnunni.
ÍBV 1 - 1 KA
1-0 Bjarni Ólafur Eiríksson ('61)
1-1 Gunnar Örvar Stefánsson ('79)
KR 2 - 1 Stjarnan
Mörk KR:
Katrín Ásbjörnsdóttir og Katrín Ómarsdóttir
Athugasemdir