06.07.04 - 13:03
Hafliði Breiðfjörð
Reiziger til Middlesbrough (Staðfest)




Hollenski landsliðsmaðurinn Michael Reiziger gekk í dag endanlega frá félagaskiptum til Middlesbrough. Reiziger hefur verið hjá Barcelona undanfarin ár en var laus á frjálsum samningi frá félaginu. Hann er 31 árs gamall bakvörður. Þá hefur Mark Viduka einnig komist í gegnum læknisskoðun og er farinn að æfa með félaginu en enn á eftir að staðfesta félagaskiptin frá Leeds. Spánverjinn Gaizka Mendieta er einnig farinn að æfa með félaginu en enn á eftir að staðfesta endanleg félagsskipti hans líka.
