Fotbolti.net
06.07.04 - 17:20
Pétur Kristjánsson

Quaresma til Porto (staðfest)

Quaresma komin aftur á heimaslóðir

Quaresma komin aftur á heimaslóðir

Canon
Ricardo Quaresma hefur skrifað undir 5 ára samning við meistaradeildar meistarana í Porto.
Quaresma gekk til liðs við Porto sama dag og landi hans fór hina áttina til Barcelona. Ekki hefur fengist staðfest hvort að þetta hafi verið sami samningurinn.

"Ég er mjög ánægður með að vera kominn til Porto og aftur til Portúgal,sagði Quaresma á blaðamannafundi. "Ég hlakka til framtíðarinnar og vinna til verðlauna hjá félaginu. Að velja FC Porto var mjög auðvelta fyrir mig þar sem liðið hafði trú á hæfileikum mínum.

Quaresma spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik á móti Porto aðeins átján ára og vann deildartitilinn og portúgalska bikarinn með Sporting Lisbon á sínu fyrsta tímabili, 2001/2002. Vængmaðurinn færði sig svo yfir til Spánar til Barcelona síðasta sumar en snýr nú aftur heim til Portúgal eftir aðeins eitt ár af fjögurra ára samningi.

Stjórnarformðaur Porto, Jorge Nuno Pinto da Costa sagði:
eftir að Deco fór til Barcelona þá var mér sagt að Quaresma langaði að snúa aftur til Portúgal og við álitum að hann myndi henta okkur vel. Quaresma passar fullkomnlega inní áætlanir nýja þjálfarans okkar, Luigi del Neri, eftir að Deco fór.
"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.