06.07.04 - 17:59
Hafliði Breiðfjörð
Arsenal kaupir Lupoli (Staðfest)




Arsenal gekk í dag frá kaupum á ítalska unglingnum Arturo Lupoli. Leikmaðurinn sem er 17 ára gamall gerði tveggja ára samning við félagið en hann kemur frá Parma eins og Rossi sem samdi við Manchester United í dag. Lupoli hafði heldur ekki gert atvinnumannasamning við Parma og því þarf Arsenal aðeins að greiða kaupverð fyrir hann. Lupoli hefur leikið með U-16 og U-17 ára liðum Ítala og er talinn einn af efnilegustu framherjum Evrópu.
