06.07.04 - 18:22
Hafliði Breiðfjörð
Deco til Barcelona (Staðfest)

Portúgalski miðvallarleikmaðurinn Deco skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Barcelona eftir að hafa gengist undir læknisskoðun.
Læknar Barcelona sögðu að leikmaðurinn sem er 26 ára gamall, væri í fínu ástandi og virtust ekki sjást leifar af hnémeiðslunum sem hann varð fyrir árið 2001.
Ekkert hefur fengist staðfest um kaupverð en Spænskir fjölmiðlar telja að Barcelona hafi greitt Porto 12 milljónir evra (8 milljónir punda) auk Ricardo Quaresma sem gerði 5 ára samning við Porto í dag.